|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-07-10 11:00:00 CEST 2017-07-10 11:00:00 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 27 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.571.000 eigin hluti að kaupverð 64.463.800 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 21. mars 2017. Sjóvá átti 31.749.630 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 35.320.630 eigin hluti eða sem nemur 2,37% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 27.239.098 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,83% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 503.395.849 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 140.943.067 hlutum eða sem nemur 9,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 2.500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018, en þó aldrei lengur en til 15. mars 2018, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|