2014-06-29 13:12:38 CEST

2014-06-29 13:13:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Eimskip í samstarf við hafnaryfirvöld í Qingdao í Kína


Nýtt sameiginlegt félag stofnað um rekstur frystigeymslu

Eimskip hefur undirritað samning við hafnaryfirvöld í kínversku hafnarborginni
Qingdao um rekstur 55 þúsund tonna frystigeymslu. Umrædd geymsla hefur hefur
verið starfrækt frá árinu 2007 af A1988 hf., áður HF. Eimskipafélag Íslands. 

Samkvæmt samkomulagi við hafnaryfirvöld í Qingdao mun Eimskip koma að
rekstrinum og verða 30% eigandi að nýju rekstrarfélagi á móti 70% eignarhlut
hafnaryfirvalda. Aðkoma hafnaryfirvalda er mikilvægur þáttur í að styrkja
rekstur frystigeymslunnar, en ýmsar breytingar eru fyrirhugaðar í umhverfi
hafnarinnar sem koma munu rekstrinum til góða í náinni framtíð. Hafnaryfirvöld
hafa valið Eimskip sem samstarfsaðila varðandi uppbyggingu á flutningatengdri
þjónustu við inn- og útflytjendur á kæli- og frystivöru þar sem Eimskip hefur
sérhæft sig á því sviði. Sameiginlegt rekstrarfélag mun leigja geymsluna af
hafnaryfirvöldum í Qingdao. James Liu, forstöðumaður Eimskips í Kína, mun stýra
rekstri geymslunnar samhliða starfsemi Eimskips í Kína. Fjárfesting Eimskips
vegna þessa verkefnis er 700 þúsund evrur sem lagt er fram sem hlutafé í hinu
nýja rekstrarfélagi. 

Frystigeymslan í Qingdao liggur við gámahöfn borgarinnar sem veltir um 15,5
miljónum gámaeininga á ári og er sjöunda stærsta gámahöfn í heimi. Um 80
starfsmenn munu starfa í hinu nýja rekstrarfélagi og er árleg velta i upphafi
áætluð um 4,5 milljónir evra. 

Eimskip rekur fjórar starfstöðvar í Kína, í Qingdao, Dalian, Xiamen og Shenzen,
og starfa hjá félaginu þar í landi um 140 starfsmenn. Höfuðstöðvar
starfseminnar eru í Qingdao, en á því svæði fer fram mikil vinnsla sjávarafurða
ásamt umfangsmiklum útflutningi á ávöxtum og grænmeti og innflutningi á kjöti.
Í nóvember á þessu ári mun Eimskip fagna 10 ára starfsafmæli sínu í Asíu, í
kringum sjávarútvegssýninguna í Qingdao, en félagið opnaði sína fyrstu
starfsstöð í Kína árið 2004. Samhliða þessu munu Eimskip og hafnaryfirvöld í
Qingdao vinna að stefnumörkun um samstarf félaganna og frekari uppbyggingu á
frystiflutningsmiðlun í Qingdao. 

Eimskip flytur í gegnum sína frystiflutningsmiðlun yfir 40 þúsund gámaeiningar
til og frá Kína árlega. Sú starfsemi hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur
mesti vöxturinn verið í viðskiptum innan Asíu. Samtarf Eimskips við
hafnaryfirvöld í Qingdao er þýðingarmikið skref í frekari uppbyggingu á
frystiflutningsmiðlun félagsins í Asíu. 

Þann 1. júlí 2014, daginn sem fríverslunarsamningur Íslands og Kína tekur
gildi, mun nýtt gámaskip Eimskips, Lagarfoss, leggjast að bryggju við hlið
frystigeymslunnar í Qingdao og flytja þaðan til Íslands nýja frystigáma og
kínverskar vörusendingar sem falla undir tollafríðindi nýja samningsins. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Það er mjög ánægjulegt að ná þessu samkomulagi við hafnaryfirvöld í Qingdao um
rekstur frystigeymslunnar að loknu löngu ferli og er það mikil viðurkenning
fyrir uppbyggingu Eimskips í Asíu. Með samkomulaginu er rennt styrkari stoðum
undir starfsemi frystigeymslunnar, sem og undir aðra starfsemi Eimskips í Kína
og Asíu. Breytingar á rekstrarumhverfi geymslunnar hafa einnig breyst til hins
betra á undanförnum misserum, meðal annars vegna geymslu á öðrum afurðum en
fiski, s.s kjöti, ávöxtum og grænmeti. Starfsemin fellur vel að stefnu Eimskips
um frekari eflingu á frystiflutningsmiðlun félagsins, en höfnin í Qingdao er
sjöunda stærsta gámahöfn í heimi. Í Qingdao búa um 8,7 milljónir manna og er
borgin ein og sér stór markaður fyrir Eimskip.“ 

Um Eimskip

Eimskip rekur 51 starfsstöð í 19 löndum og er með 16 skip í rekstri. Félagið
hefur á að skipa um 1.400 starfsmönnum, þar af um 800 á Íslandi. Um helmingur
tekna félagsins kemur frá starfsemi utan Íslands. Stefna félagsins er að veita
framúrskarandi flutningaþjónustu á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða
víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri frystiflutningsmiðlun.