|
|||
2010-05-07 13:47:10 CEST 2010-05-07 13:48:07 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 OG RIKB 19 0226Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 19 0226 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 25 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.570 m.kr. að nafnverði. 15 tilboðum var tekið fyrir 10.485 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,30 (5,92% ávöxtunarkröfu). RIKB 19 0226: Alls bárust 45 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 15.660 m.kr. að nafnverði. 29 tilboðum var tekið fyrir 11.110 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 113,90 (6,61% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11. maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 12. maí 2010. |
|||
|