|
|||
2024-09-19 19:54:34 CEST 2024-09-19 19:54:34 CEST REGULATED INFORMATION Heimar hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarHeimar hf.: Undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu hjúkrunarrýma í nýjum lífsgæðakjarnaHeimar hf. („Heimar") hafa undirritað viljayfirlýsingu við Grundarheimilin og Klasa ehf. („Klasi“) um uppbyggingu á nýjum lífsgæðakjarna á þróunarreit á Borgarhöfða í Reykjavík. Áætlað er að margvísleg heilsutengd þjónusta verði í kjarnanum, þar á meðal 100 rýma hjúkrunarheimili í rekstri Grundarheimilanna, þjónustumiðstöð og 160 íbúðir fyrir 60+. Fyrirkomulag, uppbygging og rekstur þessa nýja kjarna verður með áþekkum hætti og Grund rekur í dag í Mörkinni við Suðurlandsbraut 58 – 70. Þá er stefnt að opnun líkamsræktarstöðvar sem þjónað geti öllum íbúum Borgarhöfðans og einnig kemur til greina að koma fyrir annarri heilsutengdri þjónustu í kjarnanum auk þess sem skoðað verður hvort heilsugæslustöð gæti orðið hluti af verkefninu. Gert er ráð fyrir að íbúar þessa nýja borgarhluta í Reykjavík geti verið í kringum fimmtán þúsund talsins fyrir utan þann mikla fjölda sem mun sækja vinnu og ýmsa þjónustu þangað á hverjum degi. Heimar hafa unnið að verkefninu í nánu samstarfi við Klasa sem er að þriðjungi í eigu Heima. Klasi er þróunarfélag með mikla þekkingu í þróun nýrra uppbyggingarsvæða frá grunni. Klasi hefur til að mynda leitt uppbyggingu á 201 Smára, nýju borgarhverfi sunnan Smáralindar. Félagið heldur á mörgum áhugaverðum þróunarreitum á höfuðborgarsvæðinu sem eru komnir mislangt í uppbyggingu eða alls yfir 120 þúsund lóðarfermetrum. Meðal eigna Klasa eru lóðir á Borgarhöfða en gert er ráð fyrir lífsgæðakjarnanum í hluta þess verkefnis. Nánar um Borgarhöfða - nýjasta hverfi borgarinnar —- Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson í s. 821-0001 |
|||
|