|
|||
2013-10-30 09:45:00 CET 2013-10-30 09:45:00 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða skuldabréfaútboðsLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 29. október 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 1. nóvember 2013. Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 387.000.000 á bilinu 2,35% - 2,46%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150224 að þessu sinni. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.195.000.000 á bilinu 2,76% - 3,00 %. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 845.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,80%. Útistandandi fyrir voru ISK 12.127.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 12.972.852.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|