|
|||
2013-11-15 18:38:43 CET 2013-11-15 18:39:44 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs október 2013Færri í vanskilum og meira selt af eignum Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs fyrir október er komin út. Í skýrslunni er greint frá því að heimilum í vanskilum við Íbúðalánasjóð fer enn fækkandi í októbermánuði. Frá áramótum hefur heimilum í vanskilum við Íbúðalánasjóð fækkað um tæp 15% eða um 690 heimili. Undirliggjandi lánavirði einstaklinga í vanskilum, sem hlutfall af heildarlánavirði sjóðsins, heldur einnig áfram að lækka. Frá áramótum til loka októbermánaðar hefur Íbúðalánasjóður selt 230 fasteignir, sem er mun meira en þær 105 eignir sem sjóðurinn seldi á sama tímabili í fyrra. Þá er búið að samþykkja kauptilboð í 79 eignir til viðbótar þeim 230 sem eru seldar og vinna nú tilboðshafar að fjármögnun kaupanna. Af þeim 2.549 eignum sem Íbúðalánasjóður átti í lok október hefur 2.125 eignum verið ráðstafað í leigu, sölumeðferð eða annað. Ríflega 400 eignir bíða frekari greiningar, en flestar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu eða leigu. |
|||
|