2017-02-24 14:00:18 CET

2017-02-24 14:00:18 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Ársreikningur

Islandsbanki hf. : Ársskýrsla og Áhættuskýrsla (Pillar 3) 2016


Íslandsbanki hefur gefið út Ársskýrslu og Áhættuskýrslu fyrir árið 2016. Í
skýrslunum má finna áhugaverðar upplýsingar um starfsemi bankans og stefnu.

Áhættu- og Ársskýrsla Íslandsbanka 2016

Ársskýrsla 2016

Ársskýrsla Íslandsbanka er yfirgripsmikil samantekt um starfsemi bankans. Þar má
sjá hvernig skýr stefna, framþróun og góður rekstur hefur skapað Íslandsbanka
árangursríka aðgreiningu á bankamarkaði.

Góður árangur náðist í rekstri bankans á síðasta ári en bankinn var meðal annars
valinn besti bankinn á Íslandi af bæði The Banker og Euromoney. Fjórða árið í
röð eru viðskiptavinir bankans einnig þeir ánægðustu samkvæmt Íslensku
ánægjuvoginni .

Á síðasta ári kynnti bankinn framsæknar lausnir fyrir viðskiptavini sem einfalda
þeim bankaviðskiptin. Má þar nefna greiðslumiðlunarappið Kass, sem á dögunum var
valið besta appið á Íslandi, og netgreiðslumatið sem flýtir umsóknarferlinu um
húsnæðislán.

Skýrslan fjallar einnig um stefnuáherslur bankans, sem eru margföldun, einföldun
og heildun, hvernig þær styðja við framtíðarsýnina um að vera #1 í þjónustu og
hafa áhrif á alla starfsemi bankans.

  * Margföldun - leggur áherslu á að efla viðskiptatengsl við núverandi
    viðskiptavini og auka verðmætasköpun
  * Einföldun - leggur áherslu á skilvirkni og hagkvæmni
  * Heildun - leggur áherslu á að vera fyrirmynd í umhverfinu með stefnu bankans
    í samfélagslegri ábyrgð

Áhættuskýrsla 2016

Samhliða ársskýrslu er gefin út sérstök Áhættuskýrsla sem veitir markaðsaðilum
upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu bankans,
eiginfjárstöðu hans, sem og lausafjárstöðu. Í skýrslunni kemur meðal annars fram
að Íslandsbanki uppfyllti allar innri og ytri kröfur um áhættumörk á árinu 2016
og helst lausafjár- og eiginfjárstaða bankans sterk.


Öflugur hópur starfsmanna bankans kom að gerð þessara tveggja stóru ársrita en
er það von bankans að þær veiti góða innsýn í rekstur bankans fyrir
viðskiptavini og aðra hagaðila.

Hægt er að nálgast bæði Ársskýrslu og Áhættuskýrslu sem viðhengi, en einnig má
finna allar fjárhagsupplýsingar á vef fjárfestatengsla Íslandsbanka,
www.islandsbanki.is/ir.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is
    og í síma 440 4005.


[]