2015-10-06 16:12:04 CEST

2015-10-06 16:12:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
REG3A fjármögnun - Fyrirtækjafréttir

REG3A fjármögnun : Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Í janúar 2014 gaf REG3A fjármögnun út skuldabréf, REG3A 14 1, til fjármögnunar á
lánssamningi við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. þar sem til tryggingar eru m.a. safn
fasteigna í eigu Regins ativnnuhúsnæðis. Samkvæmt þeim lánssamningi er Reginn
atvinnuhúsnæði heimilt að gera breytingar á veðandlagi svo lengi sem önnur
sambærileg veð komi í staðinn. Slíkt þarfnast þó samþykkis REG3A fjármögnunar
sem lánveitanda. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið er að finna í
útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins.

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að fá að selja Þverbrekku 8, 200
Kópavogi, fastanr. 206-6461 og í staðinn verði sett að veði reiðufé á veðsettum
reikningi. Uppreiknað virði Þverbrekku 8 til viðmiðunar í lánssamningi er um 77
m.kr. Þá hafa fyrri skipti á veðum myndað uppsafnað umframvirði á veðandlagi sem
nemur um 35 m.kr. Reginn atvinnuhúsnæði hefur því óskað eftir því að í stað
Þverbrekku 8 komi sambærileg veð í form reiðufjár eða fasteigna að frádregnu
uppsöfnuðu umframvirði vegna fyrri skipta, þ.e. að virði um 42 m.kr.

Um er að ræða þriðju fasteign sem skipt er út á 12 mánaða tímabili en samkvæmt
útgáfulýsingu skal REG3A fjármögnun ekki samþykkja söluna nema með fyrirfram
samþykki a.m.k. 75% skuldabréfaeigenda. Slíks samþykkis hefur nú verið aflað og
hefur REG3A fjármögnun samþykkt ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við
skilmála lánssamnings og útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1 og veði verið aflétt.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, ALDA
sjóðir hf. í síma 510-1090.


[HUG#1957143]