|
|||
2009-02-27 19:23:39 CET 2009-02-27 19:24:48 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurÁrsreikningur Orkuveitu Reykjavíkur 2008Ársreikningur Orkuveitu Reykjavíkur 2008 var í dag, 27. febrúar 2009, samþykktur og áritaður af stjórn fyrirtækisins. Rekstrarafkoma Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, árið 2008 var jákvæð um 11,7 milljarða króna og batnaði um 17,5% frá árinu 2007. Afkoma fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir er sú besta í tíu ára sögu þess, hvort sem miðað er við fjárhæð eða hlutfall af veltu. Það ræðst alfarið af auknum tekjum af raforkusölu til stórnotenda í erlendri mynt. Reiknað gengistap, vegna veikingar íslensku krónunnar, nemur 88,1 milljarði króna og hefur afgerandi áhrif á afkomu og eigið fé fyrirtækisins. Frá síðustu áramótum hefur gengi krónunnar styrkst og nemur gengishagnaður Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 26,4 milljörðum króna. Afkoma Orkuveitu Reykjavíkur var neikvæð um 73,0 milljarða króna á árinu 2008 og eiginfjárhlutfall um áramót 18,6%. Frá áramótum hefur það hækkað umtalsvert í samræmi við styrkingu íslensku krónunnar um 13,5% frá 1. janúar 2009 til 26. febrúar 2009. Lausafjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur er sterk. Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir greiðslum vegna erlendrar lántöku þrátt fyrir gengissveiflur. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Helstu niðurstöður ársins 2008 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 73.037 milljóna króna halla á árinu 2008 samanborið við 6.516 milljóna króna hagnað 2007. Rekstrartekjur ársins námu 24.168 milljónum króna en voru 21.364 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 11.652 milljónir króna samanborið við 9.914 milljónir króna árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 92.523 milljónir króna á árinu, en voru jákvæðir um 4.055 milljónir króna árið 2007. Heildareignir þann 31. desember 2008 voru 259.373 milljónir króna en voru 191.491 milljón króna í árslok 2007. Eigið fé þann 31. desember 2008 var 48.359 milljónir króna en var 88.988 milljónir króna í árslok árið 2007. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. desember 2008 voru 211.015 milljónir króna samanborið við 102.503 milljónir króna í árslok 2007. Eiginfjárhlutfall var 18,6% þann 31. desember 2008 en var 46,5% í árslok 2007. Horfur Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur og lausafjárstaða sterk. Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2009 og er áformað að taka síðasta áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun á fyrsta ársfjórðungi 2011. Uppbygging annarra virkjana mun taka mið af aðgengi fyrirtækisins að lánsfé til fjárfestinga, þeim lánskjörum sem í boði verða og eftirspurn á markaði. Helstu áhrifaþættir á afkomu Orkuveitu Reykjavíkur eru gengi íslensku krónunnar, fjármagnskostnaður í erlendum myntum, innlend verðbólga og álverð á alþjóðamarkaði. Alþjóðlegir vextir hafa þegar lækkað og hagspár gefa til kynna að aðrir þættir þróist til hagstæðari vegar fyrir rekstur og efnahag fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. Orkuveita Reykjavíkur - ársreikningur 2008 Allar tölur eru í milljónum kr. 2008 2007 Rekstrarreikningur 1.1-31.12 1.1-31.12 Rekstrartekjur 24.168 21.364 Rekstrargjöld (12.517) (11.449) Rekstrarhagn. f. afskr. (EBIDTA) 11.652 9.914 Afskriftir (6.953) (5.538) Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (92.523) 4.055 Áhrif hlutdeildarfélaga (276) (121) (Tap) hagnaður fyrir skatta (88.101) 8.310 Tekjuskattur 15.064 (1.794) (Tap) hagnaður ársins (73.037) 6.516 Skipting (taps) hagnaðar Eigendur móðurfyrirtækisins (72.960) 6.509 Hlutdeild minnihluta (77) 7 (Tap) hagnaður ársins (73.037) 6.516 Handbært fé frá rekstri 7.699 7.425 Efnahagsreikningur 31.12.2008 31.12.2007 Fastafjármunir 252.618 182.284 Veltufjármunir 6.755 9.207 Eignir 259.373 191.491 Eigið fé 48.359 88.988 Langtímaskuldir og skuldbindingar 196.589 93.205 Skammtímaskuldir 14.425 9.298 Eigið fé og skuldir 259.373 191.491 Kennitölur Veltufjárhlutfall 0,47 0,99 Eiginfjárhlutfall 18,6% 46,5% |
|||
|