2023-03-23 20:21:46 CET

2023-03-23 20:21:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Brim hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Brim hf. - Niðurstöður aðalfundar 23. mars 2023


Niðurstöður aðalfundar 23. mars 2023

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.

Fundurinn samþykkti eftirtaldar tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2023 vegna rekstrarársins 2022 verði 2,8 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 5.391 millj. kr. (um 35,6 millj. evra á lokagengi ársins 2022), eða 3,09% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2022. Arðurinn verði greiddur 28. apríl 2023. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 23. mars 2023 og arðleysisdagur því 24. mars 2023. Arðsréttindadagur er 27. mars 2023. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Tillaga um starfskjarastefnu

Samþykkt óbreytt starfskjarastefna

Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna

Samþykkt að þóknun næsta starfsárs til stjórnarmanna verði 350.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.

Kosning stjórnar félagsins

Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll. Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Hjálmar Þ. Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson.

Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir. 

Skipun í nefndir

Endurskoðunarnefnd: Gunnar Ásgeirsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir, þóknun nefndarmanna verður 165.000 á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.

Starfskjaranefnd: Magnús Gústafsson, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna verður 125.000 kr. á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir næsta starfsár verði Deloitte ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

Viðhengi