2009-05-08 17:54:02 CEST

2009-05-08 17:55:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Auglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0915


Miðvikudaginn 13. maí kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 20.000 milljónum króna að nafnverði.

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagur 15. maí 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur           
RIKV 09 0915	

Gjalddagi
15.9.2009

Lánstími
4 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
mánudaginn 18. maí 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og
markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9635.