2009-08-27 01:00:26 CEST

2009-08-27 01:02:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Össur sækir um skráningu á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn



Stjórn Össurar hf.  hefur í dag  ákveðið að óska  eftir að  hlutabréf
félagsins  verði  skráð  í  kauphöll  NASDAQ  OMX  í   Kaupmannahöfn.
Hlutabréf Össurar  munu áfram  vera  skráð í  kauphöll NASDAQ  OMX  á
Íslandi, eins þau hafa verið síðan 1999.

Skráning í Kaupmannahöfn  er rökrétt  skref fyrir  félagið og  veitir
aðgang að alþjóðlegum  fjárfestum. Kaupmannahöfn  er virtur  markaður
fyrir  fyrirtæki  á   heilbrigðissviði.  Skráningarreglur  og   aðrar
lagalegar skyldur eru  svipaðar í Danmörku  og á Íslandi  þar sem  að
báðar kauphallirnar tilheyra NASDAQ OMX samstæðunni.

Jón Sigurðsson, forstjóri: "Skráningin  á Íslandi hefur reynst  okkur
vel og  við munum  áfram leggja  metnað okkar  í að  þjóna  núverandi
hluthöfum  sem   og  nýjum.   Frá  því   að  félagið   var  skráð   á
hlutabréfamarkað hefur  sala  þess ríflega  tuttugufaldast  og  Össur
breyst í alþjóðlegt fyrirtæki.  Skráning bréfa okkar í  Kaupmannahöfn
er eðlilegt framhald  fyrir félagið.  Skráningunni er  ætlað að  auka
viðskipti með hlutabréf  í félaginu, stuðla  að eðlilegri  verðmyndun
þeirra og styðja við framtíðarvöxt."

Gert er ráð fyrir að skráningin  verði samþykkt í næstu viku.  Nordea
Bank mun vera umsjónaraðili útgáfunnar í Danmörku. Nánari upplýsingar
verða veittar þegar skráningin hefur verið samþykkt.

Í framhaldi  af  skráningunni íhugar  stjórn  félagsins  lítilsháttar
hlutafjáraukningu, eða sem nemur  5-7% af heildarhlutafénu, til  þess
að auka viðskipti með bréf félagsins. Komi til slíkrar aukningar munu
bréfin verða  seld  til  fagfjárfesta og  hefur  Össur  ráðið  Nordea
Markets sem ráðgjafa vegna þessa.

Viðskipti með  íslenska  fjármálagerninga  eru  háð  gjaldeyrisreglum
Seðlabanka Íslands. Erlendum aðilum er frjálst að eiga viðskipti  með
bréf félagsins  í Danmörku  og innlendum  aðilum er  frjálst að  eiga
viðskipti með bréfin á Íslandi.

Upplýsingar um  Össur, kynningarbæklingur  og nánari  upplýsingar  um
heimildir til að  eiga viðskipti  með bréfin  sem og  möguleika á  að
flytja þau  milli  Íslands  og  Danmerkur er  að  finna  á  heimasíðu
félagsins: www.ossur.com/investors

Nánari upplýsingar veita:
Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044