2024-03-27 18:49:18 CET

2024-03-27 18:49:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Ársreikningur Byggðastofnunar 2023


Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2023, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 27. mars 2024.

Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2023 er fyrsti ársreikningur stofnunarinnar sem er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn (e. accrual basis IPSAS, International Public Sector Accounting Standards, vísað til sem "IPSAS"). Hefur ársreikningur ársins 2022 verið leiðréttur til samanburðar eftir IPSAS staðlinum.

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðunum.

Afkoma ársins var jákvæð um 703,5 milljónir króna á móti jákvæðri afkomu upp á 476 milljónir króna árið 2022. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 22,64%.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.   Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2023

  • Afkoma ársins var jákvæð um 703,5 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 22,64% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 1.243 milljónir króna eða 46% af vaxtatekjum, samanborið við 794 milljónir króna (34,4% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2022.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 623 milljónum króna samanborið við 558 milljónir árið 2022.
  • Eignir námu 25.336 milljónum króna og hafa hækkað um 1.144 milljónir frá árslokum 2022. Þar af voru útlán 22.071 milljónir samanborið við 20.072 milljónir í árslok 2022.
  • Skuldir námu 20.637 milljónum króna og hækkuðu um 441 milljón á árinu 2023.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu arnar@byggdastofnun.is

Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár

 20232022
 Þús. kr.Þús. kr.
Yfirlit um afkomu  
Vaxtatekjur.................................................2.706.6422.303.782
Vaxtagjöld..................................................1.463.2931.509.810
Hreinar vaxtatekjur.....................................1.243.349793.971
Aðrar rekstrartekjur.....................................656.934721.552
Hreinar rekstrartekjur..................................1.900.2831.515.523
   
Önnur rekstrargjöld.....................................1.196.7831.039.401
Afkoma ársins..........................................703.500476.122
   
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána lánsloforða og annarra krafna164.17281.443
   
   
Efnahagsreikningur31.12.202331.12.2022
Eignir  
Handbært fé................................................926.9301.686.337
Markaðsskuldabréf.......................................340.013314.432
Aðrar kröfur................................................25.29675.254
Hlutabréf.....................................................285.687268.913
Fullnustueignir.............................................1060.010
Hlutdeildarfélög...........................................904.568907.860
Útlán til viðskiptavina...................................22.071.44720.072.461
Varanlegir rekstrarfjármunir.........................781.796806.150
Eignir samtals..........................................25.335.74724.191.417
   
Skuldir og eigið fé  
Lántökur og skuldabréfaútgáfur.....................19.901.16219.290.410
Óráðstöfuð framlög......................................529.287681.468
Aðrar skuldir...............................................206.960224.700
Skuldir samtals........................................20.637.40820.196.578
   
Eigið fé  
Eiginfjárframlag...........................................7.800.0007.800.000
Uppsöfnuð afkoma.......................................-3.101.661-3.805.161
Eigið fé samtals...........................................4.698.3393.994.839
   
Skuldir og eigið fé samtals......................25.335.74724.191.417
   
Sjóðstreymi20232022
Handbært fé (-til) frá rekstri.........................-913.756505.204
Fjárfestingarhreyfingar.................................0-299.000
Fjármögnunarhreyfingar...............................163.058329.788
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé................-750.698535.992
Gengismunur á handbæru fé.........................-8.70932.717
Handbært fé í ársbyrjun...............................1.686.3371.117.627
Handbært fé í lok árs...............................926.9301.686.337
   
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði22,64%19,72%

Viðhengi