|
|||
2013-10-23 15:30:00 CEST 2013-10-23 15:30:44 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur - Þriðji ársfjórðungur 2013Þriðji ársfjórðungur 2013 * Hagnaður jókst um 28% milli ára og nam 13 milljónum Bandaríkjadala og 12% af sölu, samanborið við 10 milljónir dala og 10% af sölu á þriðja ársfjórðungi 2012. * Sala nam 105 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 99 milljónir dala á þriðja ársfjórðungi 2012. Söluvöxtur var 5%, þar af 3% innri vöxtur, hvortveggja mælt í staðbundinni mynt. * Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 6%, þar af 1% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt. * Sala á stoðtækjum jókst um 5%, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt. * Sala í EMEA var góð og sýndu öll landsvæði góðan vöxt. Bandaríkjamarkaður sýnir jákvæð merki, en áfram er gert ráð fyrir óvissu á þessum markaði. * Framlegð nam 65 milljónum Bandaríkjadala og 62% af sölu, samanborið við 62 milljónir Bandaríkjadala og 63% af sölu á þriðja ársfjórðungi 2012. * EBITDA nam 22 milljónum Bandaríkjadala og 21% af sölu, samanborið við 18 milljónir dala og 19% af sölu á þriðja ársfjórðungi 2012. * Rekstrarkostnaður sem hlutfall af sölu var 45% samanborið við 47% á sama fjórðungi 2012. aðhaldsaðgerðir sem farið var í á öðrum ársfjórðungi skila nú þegar tilætluðum árangri. * Handbært fé frá rekstri var 23% af sölu, samanborið við 17% á þriðja ársfjórðungi í fyrra. * Fyrsta október var gengið frá kaupunum á TeamOlmed, sem voru tilkynnt 21. maí 2013. TeamOlmed kemur inn í samstæðu Össurar 1. október 2013. * Á fjórðungnum var gengið frá tveimur minniháttar fyrirtækjakaupum. Áætlun 2013 * Stjórnendur staðfesta áður birta áætlun fyrir árið um að innri söluvöxtur verði á bilinu 2-4%, mælt í staðbundinni mynt, og leiðrétt EBITDA á bilinu 18-19% sem hlutfall af veltu. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Niðurstöður fjórðungsins eru mjög góðar og sýna hæsta rekstrarhagnað Össurar á einum fjórðungi og mjög sterkt sjóðstreymi. Það er ánægjulegt að sjá að aðhaldsaðgerðir sem við hófum á öðrum ársfjórðungi eru nú þegar að skila tilætluðum árangri. Góður árangur í EMEA heldur áfram og á Bandaríkjamarkaði sjáum við nú þegar merki um jákvæða þróun. Þrátt fyrir jákvæð merki teljum við raunhæft að gera ráð fyrir áframhaldandi óvissu á Bandaríkjamarkaði næstu fjórðunga. Á fjórðungnum héldum við áfram að stykja stöðu okkar og til viðbótar við kaupin á TeamOlmed gengum við frá kaupum á tveimur litlum fyrirtækjum." Símafundur fimmtudaginn 24. október kl. 10:00 Á morgun, fimmtudaginn 24. október, verður haldinn símafundur þar sem farið verður yfir niðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT/12:00 CET. Innhringinúmer: Evrópa: +44 (0) 203 364 5374 eða +46 (0) 8 505 564 74; Bandaríkin: + 1 855 753 2230; Ísland: 800 8660 Athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors [HUG#1737642] |
|||
|