|
|||
2014-05-21 16:45:00 CEST 2014-05-21 16:45:01 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - FyrirtækjafréttirHB Grandi kaupir NorðanfiskHB Grandi hf. hefur fest kaup á öllu hlutafé framleiðslufyrirtækisins Norðanfisks ehf. á Akranesi af meðeigendum sínum, Pálsgerði ehf., sem er í eigu Kjarnafæðis, Brim hf., og Pétri Þorleifssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Kaupverðið er 580 milljónir króna. Fyrir á HB Grandi 23,8% í Norðanfiski. Norðanfiskur sérhæfir sig í vinnslu sjávarafurða í neytendapakkningar og sér einstaklingum, veitingahúsum, mötuneytum og verslunum fyrir margvíslegum sjávarréttum. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri árið 2001 en flutti starfsemi sína tveimur árum síðar til Akraness þegar það sameinaðist fyrirtækinu Íslenskt-Franskt eldhús. Kaupin eru liður í áherslu HB Granda á aukna verðmætasköpun úr aflaheimildum félagsins. Með kaupunum hyggst HB Grandi skapa leið fyrir fullunnar afurðir sínar á innanlandsmarkaði. Starfsmenn Norðanfisks eru 28 talsins. Efnahagur Norðanfisks er traustur og nam vörusalan 1.263 milljónum króna árið 2013. Gert er ráð fyrir að kaupin munu styrkja rekstur félagsins enn frekar. Starfsemin verður áfram á Akranesi og Pétur Þorleifsson verður áfram framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir: Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, sími: 858 1007 Upplýsingar um Norðanfisk ehf. má sjá á heimasíðu félagsins: www.nordanfiskur.is |
|||
|