|
|||
2010-02-23 10:39:34 CET 2010-02-23 10:40:33 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður - VaxtaákvörðunSamkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 með síðari breytingum og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 22. febrúar s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,86%. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur lagt það til við félags- og tryggingamálaráðherra að hækka vaxtaálag sjóðsins um 0,20% og hefur ráðherra fallist á þá tillögu. Við breytingarnar verður vaxtaálag vegna rekstrar 0,30%, vegna útlánaáhættu 0,35% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við ofangreinda breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins lækki um 0,05% og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 23. febrúar 2010. |
|||
|