2014-03-24 17:49:28 CET

2014-03-24 17:50:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2013


Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla
(IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu. 

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2013 var staðfestur af stjórn félagsins
í dag, 24. mars 2014. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Tap félagsins á árinu 2013 var 882 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt
sem nemur 10.526 þús. kr. skv. ársreikningi. Ástæða fyrir þessu tapi má rekja
til fjármagnskostnaðar og lágrar húsaleigu, en þess má geta að tap ársins 2012
nam 7.899 þús. kr. og eigið fé var neikvætt sem nam 15.592 þús. kr. Stjórnin
mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 25
milljónir. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 437
millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslegaábyrgð á greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru kr. 59.058.000 á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með
vísitölu neysluverðs. 



Kristinn Jónasson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. 





Sjá lykiltölur í  viðhengi.