2014-04-16 15:43:41 CEST

2014-04-16 15:44:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2013


Rekstarafgangur samstæðu Kópavogsbæjar var 1.192 milljónir á árinu 2013 en
áætlun gerði ráð fyrir 108 milljónum. Útkoman er þannig tíu sinnum betri en
áætlun gerði ráð fyrir,  munurinn eru alls 1.084 milljónir króna. 

Skýringin liggur fyrst og fremst í hagnaði vegna úthlutunar lóða sem nemur um
660 milljónum króna. Þá var gengishagnaður upp á rúmar 300 milljónir króna. 

Þetta kemur fram í ársreikningi Kópavogsbæjar sem lagður var fram i bæjarráði
Kópavogs í morgun. Ársreikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn Kópavogs 22. apríl. Tekjur voru 21.818 milljónir króna á árinu en
bein rekstrargjöld 16.898 milljón króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og
afskriftir var 4.920 milljónir króna. Veltufé frá rekstri nam rúmum 2,8
milljörðum króna sem er í takt við áætlanir bæjarins. 

Skuldir Kópavogsbæjar lækkuðu um rúma 2 milljarða króna á árinu þrátt fyrir
hækkun lífeyrisskuldbindinga og hækkun vegna gjaldfærslu verðbóta á
verðtryggðum lánum. 

Rekstur málaflokka gekk vel og var nálægt áætlun. Laun og launatengd gjöld
samstæðu eru 1 prósent yfir áætlun en á móti kemur að skatttekjur voru 2,3%
yfir áætlun og íbúum Kópavogs fjölgaði um 2% á árinu. 

„Niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar um tvo milljarða eru góðar fréttir fyrir
Kópavogsbúa og mikill rekstrarafgangur sömuleiðis. Það er styrkur okkar að
rekstraráætlanir málaflokka skuli standast en hjá Kópavogsbæ starfar hæft fólk
sem hefur lagst á eitt við að láta þær standast. Þá má þess geta að uppgreiðslu
erlendra lána er nánast lokið þannig að áhættuþáttur þeim tengdur er úr
sögunni,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri. 

Skuldahlutfall samstæðu Kópavogsbæjar var um síðustu áramót er 185% að teknu
tilliti til langtíma lífeyrisskuldbindinga en var um 242% þegar hæst var árið
2010. Hraðar gengur að greiða niður skuldir bæjarins en gert var ráð fyrir í
aðlögunaráætlun sem samþykkt var í ársbyrjun 2013. Allt stefnir nú í að
skuldahlutfallið verði komið undir lögbundið 150% hámark árið 2017 en
aðlögunartími að því hlutfalli er til 2023. 

Íbúar í Kópavogi voru 32.303 þann 1. Desember 2013 og fjölgaði þeim um 627 frá
fyrra ári þegar þeir voru 31.676.