2013-12-12 17:27:40 CET

2013-12-12 17:28:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða Hæstaréttar í máli Haga hf. gegn Arion banka hf.


Í mars 2012 tók stjórn Haga hf. ákvörðun um að höfða dómsmál á hendur Arion
banka hf. til að fá skorið úr um stöðu sína vegna endurútreiknings á
gengistryggðum lánum félagsins hjá bankanum, sem greidd voru upp í október
2009. Hagar höfðu áður fengið greiddar 515 milljónir króna vegna
endurútreiknings bankans en niðurstaða lögfræðiálits gaf til kynna að Hagar
ættu enn frekari kröfu á hendur bankanum. 

Þann 28. maí sl. birti Héraðsdómur niðurstöðu sína í málinu þar sem Arion banki
var sýknaður af kröfu Haga. Hagar áfrýjuðu dómnum til Hæstaréttar. 

Í dag birtist niðurstaða Hæstaréttar þar sem úrskurður Héraðsdóms var
staðfestur og Arion banki því sýknaður af kröfu Haga. Niðurstaða dómsins hefur
engin fjárhagsleg áhrif á rekstur Haga. 





Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.