2021-05-07 13:53:15 CEST

2021-05-07 13:53:15 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Norðurþing - Ársreikningur

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2020


Norðurþing
Reikningsskil

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2020

Byggðarráð Norðurþings mun samþykkja ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2020 á fundi sínum þann 12. maí 2021, en vegna COVID-19 faraldursins verður hann undirritaður síðar en venja er. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn þann 20. apríl sl.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 18. maí 2021, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2020 námu 5.129 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 50,1 milljónum króna lakari en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 114 milljónum króna í restrartap. Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 2.217 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 572 milljónum króna. Handbært fé samstæðunnar í árslok nam um 790 milljónum króna.

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 3.063 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu og dótturfélögum þess nam 269 stöðugildum. Íbúafjöldi sveitarfélagsins 31. desember 2020 var 3.030 og fækkaði um 85 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 96% árið 2019 í 95% árið 2020.  

Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 7. maí 2021

Viðhengi