|
|||
2008-09-30 15:48:24 CEST 2008-09-30 15:50:19 CEST REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - FyrirtækjafréttirFitch lækkar lánshæfiseinkunn KaupþingsAlþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfiseinkunnir Kaupþings banka hf. Langtíma einkunn bankans var lækkuð úr A- í BBB og skammtímaeinkunn úr F2 í F3. Stuðningseinkunn bankans er óbreytt í 2, óháð einkunn er lækkuð úr B/C í C og stuðningseinkunnargólf er lækkað úr BBB í BBB-. Allar einkunnir eru nú á neikvæðri vöktun. Nánari upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar, í síma 444 6126 og Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112. |
|||
|