|
|||
2008-11-07 17:01:50 CET 2008-11-07 17:02:50 CET REGULATED INFORMATION Samson eignarhaldsfélag ehf. - Fyrirtækjafréttir- Samson eignarhaldsfélag ehf. óskar eftir gjaldþrotaskiptumÞann 4. nóvember síðastliðinn kvað héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þar sem hafnað var beiðni Samson eignarhaldsfélags ehf. um framlengingu á greiðslustöðvun félagsins. Í kjölfar úrskurðar héraðsdóms þá hefur stjórn Samson eignarhaldsfélags ehf. tekið ákvörðun um að fara fram á það við héraðsdóm Reykjavíkur að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta. |
|||
|