|
|||
2015-05-04 16:57:26 CEST 2015-05-04 16:58:27 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirLánshæfi Orkuveitunnar styrkist um tvö þrepReykjavík, 2015-05-04 16:57 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Lánshæfismatsfyrirtækið Reitun hefur hækkað lánshæfiseinkunn Orkuveitu Reykjavíkur um tvö þrep, úr i.A3 í i.A1. Gangi áætlanir Orkuveitunnar eftir er rúm til frekari hækkunar á lánshæfiseinkunninni. Í mati Reitunar á Orkuveitunni segir: „Horfum í lánshæfi Orkuveitunnar var breytt í jákvæðar í janúar sl. og staðfesti uppgjör félagsins þá þróun sem væntingar stóðu til um. Áframhaldandi styrking á fjárhagsstöðu félagsins, trúverðug fjárhagsáætlun ásamt góðum árangri í að ná markmiðum Plansins og staðfesta stjórnar og stjórnenda er ástæða þess að einkunn félagsins hækkar um tvö þrep. Samhliða batnandi fjárhagsstöðu og minni áhættu vinnur félagið áfram að aðgerðum til aukins fjárhagslegs svigrúms eins og fram kemur í fjárhagsáætlun þess. Framundan er m.a. fjármögnun sem ætti að styrkja veltufjárhlutfall fyrirtækisins. Svigrúm er til áframhaldandi styrkingar á lánshæfi félagsins gangi markmið og áætlun þess eftir.“ Mat Reitunar er í viðhengi. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson Framkvæmdastjóri fjármála 617 6301 |
|||
|