|
|||
![]() |
|||
2016-07-04 10:34:58 CEST 2016-07-04 10:34:58 CEST REGLERAD INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 26 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 19.066 eigin hluti að kaupverði 218.306 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) ------------------------------------------------------------------------ ------------------------------------------------------------------------ 28.06.2016 10:53 19.066 11,45 218.306 Samtals 19.066 218.306 ------------------------------------------------------------------------ Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. Sjóvá átti 11.749.537 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 11.768.603 eigin hluti eða sem nemur 0,75% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 1.852.830 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 21.625.798 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000 |
|||
|