|
|||
![]() |
|||
2016-07-18 10:00:27 CEST 2016-07-18 10:00:27 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 28 keyptu Fjarskipti hf. 100.000 eigin hluti að kaupverði 4.405.000kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 11.7.2016 12:35 100.000 44,05 4.405.000 -------------------------------------------------------------------- Samtals 100.000 4.405.000 Er hér um að ræða kaup Fjarskipta á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2016. Fjarskipti áttu 4.149.288 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 4.249.288 eigin hluti eða sem nemur 1,56% af útgefnum hlutum í félaginu. Fjarskipti hafa keypt samtals 2.080.588 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,76% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 91.364.023 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 6.734.000 hlutum eða sem nemur 2,5% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#2028934] |
|||
|