|
|||
2017-05-18 20:33:02 CEST 2017-05-18 20:33:02 CEST REGLERAD INFORMATION Reginn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarNiðurstaða skuldabréfaútboðs Regins hf.Reginn hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa, þeim fyrsta sem gefinn er út undir nýjum útgáfuramma félagsins. Boðin voru til sölu skuldabréf fyrir allt að 8 ma.kr. í nýjum flokki skuldabréfa. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður til 30 ára með jöfnum afborgunum og föstum 3,50% ársvöxtum. Skuldabréfaflokkurinn er veðtryggður samkvæmt almennu tryggingafyrirkomulagi. Alls bárust 30 tilboð í skuldabréfaflokkinn að nafnverði 7.360 m.kr. á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,40% - 3,85%. Tilboðum að fjárhæð 7.060 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,70% og eru öll samþykkt tilboð seld fjárfestum miðað við þá ávöxtunarkröfu. Afrakstri skuldabréfaútboðsins verður varið til endurfjármögnunar á óhagstæðari fjármögnun félagsins. Gjalddagi og afhending skuldabréfanna er 29. maí 2017 og sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann sama dag. Nasdaq Iceland mun tilkynna um töku skuldabréfanna til viðskipta með a.m.k. eins viðskiptadags fyrirvara. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna. Nánari upplýsingar veita: Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri Regins – helgi@reginn.is – s: 512 8900 / 899 6262 Árni Maríasson – Forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans – reginn.utbod@landsbankinn.is - s: 410 7335 / 863 9998 |
|||
|