2013-12-16 10:33:43 CET

2013-12-16 10:34:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Breytingar á stjórn Landsbréfa


Á hluthafafundi Landsbréfa hf. sem haldinn var eftir lokun markaða þann 13.
desember 2013 urðu þær breytingar á stjórn Landsbréfa hf. að Halldóra G.
Hinriksdóttir sem setið hefur í stjórn félagsins síðan júní 2012, Helga
Friðriksdóttir, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan í nóvember 2012, og
Jón Steindór Valdimarsson, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan apríl 2012,
létu af störfum. Í þeirra stað voru kjörin þau Helga Gunnarsdóttir,
viðskiptafræðingur, Jón Þór Grímsson, lögfræðingur og Sigríður Hrund
Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Í kjölfar fundarins var Sigurbjörn Jón
Gunnarsson kjörinn formaður stjórnar, en hann hefur setið í stjórn félagsins
síðan í maí 2012. 

Nánari upplýsingar veitir Sigþór Jónsson, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma
821-2065 eða sigthor.jonsson@landsbref.is.