|
|||
2009-08-31 11:18:46 CEST 2009-08-31 11:19:47 CEST REGULATED INFORMATION KB ABS 12 - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB ABS 12 á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2009 Framsetning ársreiknings fagfjárfestasjóðsins KB ABS 12 er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. • Enginn hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi, en KB ABS 12 er útgefandi skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. • Eigið fé sjóðsins 30. júní 2009 nam 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi. • Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2009 og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. Í könnunaráritun óháðs endurskoðanda er ábending, þar sem vakin er athygli á skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra og skýringu 6, þar sem greint er frá mati á verðbréfum. Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstrarfélag KB ABS 12, nam þann 30. júní 2009 1.252 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 20,9%, en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar um ársreikning KB ABS 12 veitir Eiríkur Magnús Jensson sjóðstjóri í síma 444 7468. |
|||
|