2012-01-12 17:46:35 CET

2012-01-12 17:47:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur


til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í
ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701 

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur
til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í
ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701. Útboðin tvö eru liður í losun hafta á
fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá
25. mars 2011 og einnig skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti
samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011. 

Seðlabankinn býðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í
útboðunum tveimur. Útboðsfjárhæðin er háð þeim fyrirvara að hún er sameiginleg
báðum útboðum og kann því að taka endanlegt mið af því. Seðlabankinn áskilur
sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðina. 

Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í
útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum, en yfirlit um þá má finna á heimasíðu
Seðlabankans. 

Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um
milligöngu (upptalning hér að neðan) munu annast framlagningu umsókna um
fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni.
Útboðið er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í
fjárfestingarleið. 

Tilboðum skal skilað eigi síðar en 15. febrúar 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd
útboðanna er að finna í útboðsskilmálum. 

Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem
ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs
sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna
ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr
endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í
langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta.