2009-11-17 16:35:25 CET

2009-11-17 16:36:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hitaveita Suðurnesja - Fyrirtækjafréttir

- Geysir Green Energy eignast meirihluta í HS Orku


Geysir Green Energy (Geysir), Reykjanesbær og kanadíska jarðhitafyrirtækið
Magma Energy Corporation (Magma) hafa lokið viðskiptum vegna kaupa Geysis á 34%
hlut í HS Orku af Reykjanesbæ. Ennfremur kaupir Magma 8,6% hlut í HS Orku af
Geysi. Með sölunni lýkur fyrri áfanga af tveimur í sölu Geysis á alls 10,8%
hlutafjár í HS Orku til Magma fyrir rúma þrjá milljarða króna sem félagið
staðgreiðir og mun hafa áhrif til styrkingar á gengi krónunnar.

Eftir sölu hlutarins í dag er Geysir eigandi 57,4% hlutafjár í HS Orku hf. en
seinni áfangi viðskiptanna er sala á 2,2% hlut að auki til Magma í byrjun næsta
árs. Að þeim viðskiptum loknum verður Geysir eigandi 55,2% hlutar í HS Orku.
Kaup Magma á hlut í HS Orku koma í kjölfar samkomulags Reykjanesbæjar og Geysis
um breytt eignarhald á HS Orku og HS Veitum. Með því samkomulagi eignaðist
Geysir nær allan hlut Reykjanesbæjar í HS Orku en lét á móti hlut sinn í HS
Veitum. Reykjanesbær á nú 66,75% hlut í HS Veitum og 0,75% hlut í HS Orku. 
Áður hefur Reykjanesbær keypt allar auðlindir HS Orku af félaginu og leigir því
nýtingarréttinn, og tryggir þannig eignarhaldið á auðlindunum og að samfélagið
njóti áfram arðs af nýtingu þeirra. 

„Viðskipti þessi eru grundvöllur þess að gera HS Orku kleift að sækja sér
fjármagn til fyrirhugaðra framkvæmda við uppbyggingu gufuaflsvirkjana á
Suðurnesjum. Vegna veikingar íslensku krónunnar hafa erlendar skuldir HS Orku
hækkað umtalsvert. Þar af leiðandi hefur eiginfjárhlutfall félagsins lækkað
niður fyrir þau lágmörk sem kveðið er á um í lánasamningum félagsins. Félagið
hefur nú náð samkomulagi við tvo af þremur lánadrottnum sínum og samningar við
þann þriðja eru á lokastigi,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis. 
Um Geysi Green Energy
Geysir Green Energy er fyrirtæki á sviði sjálfbærrar orkuvinnslu. Geysir er með
sterka stöðu í vinnslu jarðvarma á Íslandi, í Þýskalandi, Kína og á
Filippseyjum og stefnir að því að efla íslenska orkustarfsemi enn frekar og
nýta þekkingu sína erlendis þar sem tækifæri gefast. 

Helstu eignir Geysis nú, eftir sölu 8,6% hlutarins til Magma, eru 57,4% hlutur
í HS Orku hf. og Jarðboranir hf. Geysir hefur einnig unnið með góðum árangri að
uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í 
Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum. Enex ehf. er dótturfélag Geysis.
Meðal verkefna sem Enex lauk á síðasta ári var bygging 9,3 MW
jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri. Þetta er
fyrsta jarðvarmavirkjunin sem er að fullu hönnuð og byggð erlendis undir stjórn
íslensks fyrirtækis. Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á
háskólastigi á Suðurnesjum. 


Nánari upplýsingar:
Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy, sími 665 2055.