|
|||
![]() |
|||
2013-05-08 18:31:11 CEST 2013-05-08 18:31:40 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Útboði lokið á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaðaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 3 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1.500 m.kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 3 mánaða víxillinn var boðinn út á 6,10% flötum vöxtum (verð: 98,4650) og 6 mánaða víxillinn á 6,30% flötum vöxtum (verð: 96,8804). Tilboðum var tekið í 3 mánaða víxilinn að fjárhæð 920 m.kr. að nafnvirði og að fjárhæð 700 m.kr. að nafnvirði í 6 mánaða víxilinn. Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er á töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1700550] |
|||
|