|
|||
![]() |
|||
2012-03-12 10:41:08 CET 2012-03-12 10:42:09 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaLandsbankinn hyggst selja allt að 5% eignarhlut í Marel hf.Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allt að 5% eignarhlut í Marel hf. Um er að ræða þegar útgefin bréf í Marel, sem eru í eigu Landsbankans, en alls heldur Landsbankinn nú á 6,84% eignarhlut í Marel. Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með sölu hlutanna, sem mun fara fram í útboði þar sem notuð er undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar, í samræmi við heimild í c-lið, 1. töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Lágmark hvers tilboðs er 100.000 hlutir að nafnverði í Marel, en lágmarksgengi í útboðinu verður 138 krónur á hlut og hámarksgengi verður 142 krónur á hlut. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast tilboðsgjöfum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Nánari útboðsskilmálar, ásamt tilboðseyðublöðum, verða aðgengilegir hjá Markaðsviðskiptum Landsbankans eftir lokun viðskipta í Kauphöll í dag, mánudag. Tekið verður við tilboðum frá og með þriðjudeginum 13. mars 2012 kl. 10:00 (GMT), en tilboðsfrestur rennur út miðvikudaginn 14. mars 2012 kl. 16:00 (GMT). Niðurstöður útboðsins verða birtar í Kauphöll að loknu útboði. Nánari upplýsingar veita: Helgi Þór Arason, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans. Sími: 410 7335 Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Markaða og Fjárstýringar Landsbankans. Sími: 410 7313 |
|||
|