|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-11-07 14:35:17 CET 2017-11-07 14:36:18 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Hagar hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning um kaup Haga á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunarÍ 45. viku 2017 keyptu Hagar hf. 1.525.668 eigin hluti fyrir kr. 56.300.846 eins og hér segir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 14. ágúst 2017, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 11. ágúst 2017. Endurkaupaáætluninni er nú lokið en Hagar hafa keypt samtals 25.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki mátti kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 891.554.791 sem samsvarar 89,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. Hagar eiga nú samtals 44.168.349 eigin hluti, eða 3,77% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.171.502.190. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 6. júní 2018 eða fram að aðalfundi félagsins 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|