|
|||
2017-11-07 17:01:09 CET 2017-11-07 17:02:10 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reykjanesbær - ÁrsreikningurFjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2018 til og með 2022
Reykjanesbæ, 07.11.2017.
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árin 2018 til og með 2022, er lögð fram í dag þriðjudaginn 7. nóvember 2017. Reykjanesbær leggur fram fjárhagsáætlun til 5 ára, 2018 til og með 2022. Í fjárhagsáætluninni kemur fram í samstæðu (A+B hluti) að framlegð rekstrar verður 4.385 m.kr. Rekstrarniðurstaða eftir afskriftir í samstæðu er 3.052 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðu eftir fjármagnsliði er 717,3 m.kr. Í fjárhagsáætluninni kemur fram að framlegð rekstrar í bæjarsjóði (A-hluta) verður 1.416 m.kr. Rekstrarniðurstaða eftir afskriftir í bæjarsjóði er 1.021 m.kr. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs eftir fjármagnsliði er 125 m.kr. Gert er ráð fyrir að fjármagn vegna nýframkvæmda verði 300 m.kr. Einnig er gert ráð fyrir að á árinu 2018 verði farið í stækkun eins leikskólans á Ásbrú og á árinu 2018 hefjist bygging fyrsta áfanga nýs skóla, Stapaskóla. Gert er ráð fyrir 3% íbúafjölgun fyrir árin 2018 og 2019, en lækkar eftir það í 2,5% íbúafjölgun. Útsvar lækkar og verður 14,52% á árinu 2018. Fasteignaskattur lækkar úr 0,5% í 0,48% af fasteignamati á árinu 2018. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kjartan Már Kjartansson (kjartan.m.kjartansson@reykjanesbaer.is) |
|||
|