2009-05-15 16:07:56 CEST

2009-05-15 16:08:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Eimskip og Kiwanis gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma


Á næstu vikum mun Eimskip og Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk 
grunnskóla landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak Eimskips og
Kiwanishreyfingarinnar, auk þess sem verkefnið nýtur ráðgjafar og stuðnings
Forvarnahússins. Alls verða 4200 reiðhjólahjálmar gefnir í ár og mun Eimskip
og Kiwanisklúbbar vítt og breitt um landið sjá um dreifinguna. 

Fyrir fimm árum tók Eimskip höndum saman með Kiwanishreyfingunni í þessu
verkefni, og hafa nú hátt í  30 þúsund hjálmar verið gefnir börnum á aldrinum
7-12 ára, sem er tæplega 10% þjóðarinnar. 

Nemendur í 1. bekk í Norðlingaskóla komu í höfuðstöðvar Eimskips í Reykjavík á
fimmtudaginn og voru þau  fyrstu börnin til að fá afhenta hjálma í ár.
Handknattleikskapparnir Sigfús Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson afhentu
fyrstu hjálmana, ásamt fulltrúum frá Eimskip og Kiwanis, og vöktu þeir félagar
mikla lukku. Þeir brýndu fyrir krökkunum hve mikilvægt það væri að nota hjálma,
jafnt fyrir börn og fullorðna. 

Kiwanisfélagar fara í alla grunnskóla á landinu og afhenda börnunum hjálma og
ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá börnin
fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. 

Þetta árið verða þúsundir íslenskra skólabarna öruggari í umferðinni með hjálma
merkta Eimskip og Kiwanis. Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli víðsvegar
um heim og eru dæmi þess að erlendir aðilar hafi tekið það upp, meðal annars í
Bandaríkjunum.