2009-01-19 11:40:20 CET

2009-01-19 11:41:20 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður - Vaxtaákvörðun


Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir
sjóðsins verði óbreyttir.  Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða
áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. 

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 16. janúar 2009 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,44%. 

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna
uppgreiðsluáhættu 0,50%. 
Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðar vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af
fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi, samkvæmt 3.
mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og  14.
gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.