|
|||
2008-11-24 18:21:07 CET 2008-11-24 18:22:09 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirStandard & Poor's lækkar lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt í 'BBB-' - horfur neikvæðarMatsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag, 24. nóvember 2008, að það hefði lækkað lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í erlendri mynt í 'BBB-' úr 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. Lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum krónum var staðfest 'BBB'. Horfur eru neikvæðar. Þá voru einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum og erlendri mynt staðfestar, 'A-3'. Lækkun á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar lækkunar á lánshæfismati ríkissjóðs Íslands. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi. |
|||
|