2014-07-29 15:28:15 CEST

2014-07-29 15:28:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Hluthafafundir

N1 hf : Hluthafafundur


Hluthafafundur N1 hf.

Stjórn N1 hf. boðar til hluthafafundar miðvikudaginn 20. ágúst 2014 klukkan
16:00 á aðalskrifstofu félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi.

Dagskrá fundarins:
1. Breyting á samþykktum - varamenn
2. Kosning eins aðalstjórnarmanns í stjórn félagsins og tveggja varamanna
3. Önnur mál löglega upp borin

Nánar um dagskrá fundarins:
Rétt áður en aðalfundur N1 hf. hófst fimmtudaginn 27. mars 2014 kl. 16:00
síðdegis dró einn frambjóðenda til aðalstjórnar til baka framboð sitt.
Sjálfkjörið var til stjórnar  og varastjórnar að öðru leyti. Þar sem allir
frestir um framboð til stjórnar voru liðnir þegar afturköllun framboðsins barst
var ekki hægt að bregðast við hinum breyttu aðstæðum á þeirri stundu. Stjórn N1
hf. hefur nú ákveðið að boða til hluthafafundar þar sem kjör eins stjórnarmanns
í aðalstjórn verður á dagskrá til að tryggja að aðalstjórn verði fullskipuð fram
að næsta aðalfundi félagsins.

Á sama tíma leggur stjórn N1 til þá breytingu á samþykktum félagsins að fellt
verði á brott ákvæði um kjör tveggja varastjórnarmanna skv. 1. málslið 17. gr.
gildandi samþykkta félagsins. Frá síðasta aðalfundi hafa báðir kjörnir
varastjórnarmenn sagt af sér. Í stað þess að leggja til kjör nýrra varamanna í
stjórn leggur stjórnin til að ákvæðið um varamenn verði fellt niður. Tillagan um
að fella niður ákvæði í samþykktum um varamenn tekur ekki gildi fyrr en í fyrsta
lagi við samþykkt hennar, þannig að gera þarf ráð fyrir dagskrárliðnum framboð
til varastjórnar með fyrirvara um samþykkt hennar, en í því tilviki falla
framboð til varastjórnar niður.

Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á
vefsíðu félagsins www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða
að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka
daga milli klukkan 9:00-16:00.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr.
a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega
með minnst fimm sólarhringa fyrirvara fyrir hluthafafundinn, eða fyrir kl.
16:00 föstudaginn 15. ágúst 2014. Framboðum skal skila á skrifstofu N1 hf.,
Dalvegi 10-14, Kópavogi eða á netfangið hluthafar@n1.is. Upplýsingar um
frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund.

Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 15:30
þann dag sem hluthafafundurinn verður haldinn.

Stjórn N1 hf.

[HUG#1841910]

Hluthafafundur N1.pdf