|
|||
2012-11-26 17:17:12 CET 2012-11-26 17:18:13 CET REGULATED INFORMATION Reginn hf. - HluthafafundirDagskrá hluthafafundar Regins 4. desember 2012Hluthafafundur Regins hf. verður haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 4. desember 2012 og hefst kl. 15.00, stundvíslega. Fundurinn er í salnum Ríma. Dagskrá fundarins : 1. Kosning tveggja nýrra stjórnarmanna 2. Tillaga lögð fram um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutabréfum 3. Önnur mál. Tillögur stjórnar Regins hf. 1. Kosning tveggja stjórnarmanna. Lagt er til að eftirgreindir aðilar sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn Regins hf. verði kosnir til setu í stjórninni fram að næsta aðalfundi félagsins: Guðrún Blöndal, kt. 270360-3869 Benedikt Kristjánsson, kt. 190952-4879 Greinargerð: Stjórnarmennirnir Fjóla Þ. Hreinsdóttir og Hjördís Halldórsdóttir hafa sagt sig úr stjórn félagsins og því er nauðsynlegt að kjósa nýja aðila til setu í stjórninni í þeirra stað. 1. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum Hluthafafundur í Reginn hf. haldinn þann 4. desember 2012 samþykkir með vísan til 55. greinar hlutafélagalaga nr. 2/1995, að heimila stjórn félagsins á næstu þremur árum að kaupa hlutabréf í félaginu sjálfu. Kaupverð bréfanna skal miðast við síðasta skráða dagslokargengi á markaði áður en samningur um hlutafjárkaupin er gerður. Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa hvað fjölda hluta varðar. Félagið og dótturfélög þess mega aldrei eignast fleiri hluti í sjálfu sér en lög bjóða, nú 10% af hlutafénu. Ofangreind dagskrá og tillögur eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Smáralind, 3. hæð, að Hagasmára 1, 201 Kópavogur, frá og með 27. nóvember 2012. Upplýsingarnar eru auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Kópavogur, 26. nóvember 2012 Stjórn Regins hf. |
|||
|