|
|||
![]() |
|||
2016-08-31 19:09:14 CEST 2016-08-31 19:09:14 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - ÁrsreikningurAfkoma Arion banka á fyrri árshelmingi 2016Hagnaður Arion banka á fyrri helming ársins 2016 nam 9,8 milljörðum króna samanborið við 19,3 milljarða króna á sama tímabili 2015. Arðsemi eigin fjár var 9,5% samanborið við 22,8% fyrir sama tímabil árið 2015. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2,8 milljörðum króna samanborið við 7,8 milljarða á fyrri helming ársins 2015. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 2,8% samanborið við 9,8% á fyrri helming ársins 2015. Heildareignir námu 1.035,0 milljörðum króna í lok júní samanborið við 1.011,0 milljarða króna í árslok 2015 og eigið fé hluthafa bankans nam 199,2 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 192,8 milljarða króna í árslok 2015. Efnahagur bankans er sterkur og lögð hefur verið áhersla á trygga lausafjárstöðu í aðdraganda afnáms fjármagnshafta. Eiginfjárhlutfall bankans í lok júní var 27,8% en var 24,2% í árslok 2015. Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 26,8% samanborið við 23,4% í árslok 2015. Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi: Í milljónum króna 1H 2016 1H 2015 2F 2016 2F 2015 Hreinar vaxtatekjur 14.626 13.175 7.353 7.392 Hreinar þóknanatekjur 6.747 7.434 3.528 3.677 Hreinar fjármunatekjur 3.495 9.723 3.796 2.184 Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga 694 4.217 17 6 Aðrar rekstrartekjur 1.861 1.523 626 1.032 ----------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 27.423 36.072 15.320 14.291 Laun og launatengd gjöld (8.426) (7.167) (4.318) (3.675) Annar rekstrarkostnaður (6.970) (6.004) (3.736) (3.108) Bankaskattur (1.485) (1.389) (743) (659) Hrein virðisbreyting 945 (81) 1.448 (1.863) ----------------------------------------------------------------------------- Hagnaður fyrir skatta 11.487 21.431 7.971 4.986 Tekjuskattur (2.091) (2.367) (1.354) (647) Afkoma af aflagðri starfsemi eftir skatta 363 262 259 79 ----------------------------------------------------------------------------- Hagnaður tímabilsins 9.759 19.326 6.876 4.418 ----------------------------------------------------------------------------- ----------------------------------------------------------------------------- Helstu kennitölur Arðsemi eigin fjár 9,5% 22,8% 13,3% 10,2% Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir 3,1% 3,0% 3,1% 3,3% Kostnaðarhlutfall 56,1% 36,5% 52,6% 47,5% Tier 1 hlutfall 26,8% 21,8% 26,8% 21,8% Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Afkoma bankans á fyrstu sex mánuðum ársins er undir væntingum. Grunnrekstur bankans gekk engu að síður ágætlega á tímabilinu en ytri aðstæður voru um margt óhagstæðar. Góður vöxtur var í útlánum, sérstaklega til fyrirtækja en lán bankans til fyrirtækja hafa aukist um 8% frá áramótum og hreinar vaxtatekjur aukast um 11%. Arion banki er vel búinn undir þær breytingar sem afnámi hafta fylgja, með traustan efnahag og sterka lausafjárstöðu. Aðstæður á fjármálamörkuðum á tímabilinu voru bankanum óhagstæðar. Þannig eru fjármagnstekjur, aðrar en sala Valitor á hlutabréfum í Visa Europe, undir okkar væntingum og er bókfært umtalsvert tap af hlutabréfaeign bankans í skráðum félögum. Arion banki sá um allar nýskráninar í kauphöll á árinu 2015 en engar skráningar hafa átt sér stað á þessu ári og hefur það áhrif á þóknanatekjur bankans. Rekstrarkostnaður eykst og munar þar mest um hærri launakostnað, fyrst og fremst vegna kjarasamninga. Talsverð fjölgun starfsfólks í kjölfar aukinna umsvifa hefur þar einnig áhrif, ekki síst nýtt útibú Arion banka á Keflavíkurflugvelli sem var opnað í maí og er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þar teljum vera góð sóknarfæri. Starfsfólki fjölgar einnig í Valitor þar sem áfram er fjárfest í vexti á erlendum vettvangi. Arion banki hefur verið leiðandi íslenskra banka á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í nýrri fjármögnun. Í apríl gaf bankinn út öðru sinni skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta á umtalsvert hagstæðari kjörum en fyrra skuldabréfið sem var gefið út fyrir um ári síðan. Þessar útgáfur hafa verið mjög vel heppnaðar og gengi þeirra á eftirmarkaði hefur sýnt að eftirspurn eftir útgáfu bankans er umtalsverð. Bankinn hefur sömuleiðis gefið út sértryggð skuldabréf og víxla á íslenska markaðnum sem hefur verið vel tekið.“ Fundur með markaðsaðilum Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 1. september, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|