2016-08-31 19:21:00 CEST

2016-08-31 19:21:00 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
HB Grandi hf. - Ársreikningur

Uppgjör HB Granda hf. á öðrum ársfjórðungi 2016



  -- Rekstrartekjur samstæðunnar á öðrum árfjórðungi voru 51,3 m€ og 95,2 m€ á
     fyrri árshelmingi
(2F 2015: 57
,1
 m€, 1H 2015: 110,4 m€)
  -- EBITDA nam 8,6 m€ á öðrum ársfjórðungi og 21,0 m€ á fyrri árshelmingi (2F
     2015: 9,9 m€, 1H 2015: 31,3 m€)
  -- Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 6,9 m€ og á fyrri árshelmingi 12,5 m€ (2F
     2015: 8,2 m€, 1H 2015: 22,0 m€)
  -- Handbært fé frá rekstri nam 7,1 m€ á fyrri árshelmingi (1H 2015: 18,2 m€)

Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2016

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2016 námu 95,2 m€,
samanborið við 110,4 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA)
var 21,0 m€ eða 22,0% af rekstrartekjum, en var 31,3 m€ eða 28,3% árið áður. 
Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 0,7 m€, en voru neikvæð
um 0,02 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélags voru jákvæð um 1,8
m€, en voru neikvæð um 3,0 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 14,6 m€
og hagnaður tímabilsins var 12,5 m€. 

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 411,1 m€ í lok júní 2016. Þar af voru
fastafjármunir 325,7 m€ og veltufjármunir 85,4 m€.  Eigið fé nam 235,6 m€,
eiginfjárhlutfall í lok júní var 57,3%, en var 62,2% í lok árs 2015.
Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 175,5 m€. 

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 7,1 m€ á tímabilinu, en nam 18,2 m€ á sama tíma
fyrra árs.  Nettó fjárfesting í rekstrarfjármunum nam 6,9 m€. 
Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 0,3 m€.  Handbært fé lækkaði því um
0,02 m€ á tímabilinu og var í lok júní 11,2 m€. 

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi
fyrri árshelming 2016 (1 evra = 141,18 kr) verða tekjur 13,4 milljarðar króna,
EBITDA 3,0 milljarður og hagnaður 1,8 milljarðar.  Séu niðurstöður
efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2016 (1 evra =
136,37 kr) verða eignir samtals 56,0 milljarðar króna, skuldir 23,9 milljarðar
og eigið fé 32,1 milljarðar. 

Skipastóll og afli

Skipafloti félagsins var óbreyttur frá áramótum.

Á fyrri árshelmingi ársins 2016 var afli skipa félagsins 25 þúsund tonn af
botnfiski og 51 þúsund tonn af uppsjávarfiski. 

Kynningarfundur þann 1. september 2016

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi verður haldinn
fimmtudaginn 1. september klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði
1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.