2016-08-31 19:30:07 CEST

2016-08-31 19:30:07 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
SRE fjármögnun 2 - Ársreikningur

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins SRE fjármögnun 2 árið 2016


Fagfjárfestasjóðurinn SRE fjármögnun 2 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. 

  -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt
     rekstrarreikningi.
  -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf., í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á fyrri hluta
     ársins 2016, efnahagi hans 30. júní 2016 og breytingu á hreinni eign
     sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og
     reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
     Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag á
heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning fagfjárfestasjóðsins SRE fjármögnun 2
veitir Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis, í síma 444 7464.