|
|||
![]() |
|||
2016-09-01 20:21:56 CEST 2016-09-01 20:21:56 CEST REGLERAD INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirREITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 1. septemberLokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 1. september 2016 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í áður útgefnum og skráðum flokkum, REITIR151244 og REITIR151124. Tilgangur skuldabréfaútgáfu félagsins er endurfjármögnun á hluta núverandi skulda félagsins, til fjármögnunar fasteignaþróunar og mögulegra fasteignakaupa sem og til rekstrarþarfa eftir atvikum. Alls bárust tilboð í flokkana að nafnvirði 1.905 milljóna króna. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 890 milljóna króna á ávöxtunarkröfunni 3,59% í flokknum REITIR151244 en hafna öllum tilboðum í flokknum REITIR151124. Áður hafa verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 29.115 milljóna króna í flokknum REITIR151244 og verður heildarstærð hans því að nafnvirði 30.005 milljóna króna eftir útgáfuna. Í flokknum REITIR151124 hafa áður verið gefin út skuldabréf að nafnvirði 2.540 milljóna króna og verður heildarstærð hans óbreytt. Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er fyrirhuguð 8. september næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir: Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, á netfanginu einar@reitir.is eða í síma 669 4416 |
|||
|