|
|||
![]() |
|||
2016-09-01 22:57:27 CEST 2016-09-01 22:57:27 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirMoody’s hækkar lánshæfiseinkun Íslands í A3 með stöðugum horfum.Matsfyrirtækið Moody’s hefur í dag hækkað lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins um tvö þrep í A3 úr Baa2. Horfur eru stöðugar. Með þessari ákvörðun er lokið endurskoðun til hækkunar sem hófst 10. júní, 2016. Hækkun um tvö þrep endurspeglar hraða og umfang bata þjóðarbúskaparins eftir bankakreppuna 2008. Samfelldur hagvöxtur og aðhald í ríkisfjármálum leiddi til verulegrar lækkunar á skuldum ríkissjóðs síðast liðið ár. Moody’s býst við að sú þróun haldi áfram og staðfestist með ráðstöfun fjármuna frá þrotabúum föllnu bankanna á næstu árum.Varfærin en stöðug framvinda í meðhöndlun á vandamálum bankakerfisins og losun hafta hefur verulega dregið úr áhættu fyrir efnahags- og fjármálastöðugleika í lokaáfanganum í losun hafta. Stöðugar horfur endurspegla jafnvægi áhættuþátta sem Moody’s lítur til í einkunnagjöfinni næstu tvö árin. Þar vegast á jákvæð áhrif af hóflegum en stöðugum hagvexti ásamt áframhaldandi aðhaldi í ríkisfjármálum á móti áhættu af endanlegri losun hafta, mögulegum þrýstingi á efnahag og fjármál vegna mikils innflæðis fjármagns og spennu á vinnumarkaði auk framvindu í stjórnmálum. |
|||
|