2016-05-26 14:46:32 CEST

2016-05-26 14:46:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 og
LSS151155 þann 25. maí 2016. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 27. Maí
2016. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 2.200.000.000 á bilinu 3,29% -
3,45%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 350.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 3,30%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150434 fyrir ISK 30.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434
nemur því að nafnvirði ISK 380.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Útistandandi
fyrir voru ISK 21.039.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 21.419.352.565. 

Ekki bárust tilboð í LSS151155 í viðbótarútgáfunni.



Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
e-mail: orvar@lanasjodur.is