2013-02-11 15:00:11 CET

2013-02-11 15:01:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Company Announcement (is)

HB Grandi fækkar frystitogurum en fjölgar ísfisktogurum


Vegna betri afkomu landvinnslunnar og skerðingar á aflaheimildum hefur HB
Grandi ákveðið að leggja einum frystitogara sínum og breyta öðrum í
ísfisktogara.  Á næsta fiskveiðiári mun félagið því gera út þrjá frystitogara í
stað fimm en fjóra ísfisktogara í stað þriggja. Auk togaranna gerir HB Grandi
út þrjú uppsjávarskip. 

Það er mat  félagsins að meiri verðmætasköpun muni áfram felast í því að vinna
aflann í landi frekar en frysta hann á sjó, meðal annars vegna aukinnar
eftirspurnar erlendis eftir ferskum sjávarafurðum. 

Ástæðan fyrir fækkun í togaraflota HB Granda er fyrst og fremst ónægar
aflaheimildir, en síðastliðin þrjú ár hafa bolfisksheimildir félagsins minnkað
um 3.445 þorskígildistonn. Afli togara fyrir hvern úthaldsdag hefur einnig
aukist á undanförnum árum, úr 22 tonnum í 26 tonn. 

Við framangreindar breytingar mun sjómönnum félagsins væntanlega fækka um 34,
úr 320 í 286, en störfum í landvinnslu mun fjölga um 50. Stöðugildum hjá
fyrirtækinu mun því fjölga um 16 við þessar breytingar. Alls starfa um 800
manns hjá HB Granda. 

Búast má við breytingum á mönnun allra skipa HB Granda sem verið er að kynna
sjómönnum félagsins og fulltrúum stéttarfélaga þeirra. Stefnt er að því að
framtíðarmönnun skipanna liggi fyrir 27. mars nk. og þær taki gildi 10. júlí en
þá verða aflaheimildir frystitogaranna Helgu Maríu og Venusar fyrir
yfirstandandi fiskveiðiár uppurnar. 

Venusi, sem er elsti togari félagsins, smíðaður á Spáni 1973, verður lagt.
Helgu Maríu verður siglt til Póllands í almennt viðhald og verður breytt í
ísfisktogara. Skipasmíðastöðvar í Póllandi voru með lægstu tilboðin í verkið,
mun lægri en frá íslenskum fyrirtækjum. Helga María er væntanleg aftur til
veiða í byrjun nóvember. 





Nánari upplýsingar veitir:

Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda,

Sími 858 1007 (Eftir klukkan 16.00 í dag.)