2011-04-08 13:45:13 CEST

2011-04-08 13:46:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824


Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum
ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð
buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði
söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 12 0824:
Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.910 m.kr. að nafnverði. 9
tilboðum var tekið fyrir 2.810 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,1 (3,40%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12.
apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 13. apríl 2011.