2009-12-18 17:26:22 CET

2009-12-18 17:27:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning vegna útgáfu íbúðabréfa


Þann 7. október 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun um útlán,
útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að
gefa út íbúðabréf að fjárhæð 6-8 milljarðar á fjórða ársfjórðungi, en
samtals nemur heildarútgáfa fjórðungsins 3,68 milljörðum króna að nafnverði.
Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í frekari útboð íbúðabréfa á fjórða 
ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á fjórða ársfjórðungi en áður var
gert ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. 

Áætlanir sjóðsins um útlán, greiðslur og útgáfu íbúðabréfa á árinu 2010 verða
birtar þann 21. desember 2009.