2009-10-01 16:04:20 CEST

2009-10-01 16:05:20 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Sparisjóði Mýrasýslu veitt heimild til að leita nauðasamninga


Héraðsdómur Vesturlands hefur veitt Sparisjóði Mýrasýslu heimild til að leita
nauðasamninga. Hefur Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður verið skipaður
umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum félagsins. Sparisjóðinum var með
ákvörðun Fjármálaeftirlitsins þann 2. júlí sl. skipuð bráðabirgðastjórn vísan
til ákvæða laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og var skipunartími hennar
þrír mánuðir. Skv. ákvæðunum l. 161/2002 um fjármálafyrirtæki framlengist umboð
bráðabirgðastjórnar þar til einn mánuður er liðinn frá því
nauðasamningsumleitunum lýkur.