2016-10-10 17:59:34 CEST

2016-10-10 17:59:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Fyrirtækjafréttir

N1 hf: Aukin umferð og fjölgun ferðamanna umfram væntingar


Samkvæmt  drögum að uppgjöri 3. ársfjórðungs 2016 hjá N1 hf. er aukning í seldum
lítrum   í  bifreiðaeldsneyti  umfram  áætlanir  sem  og  sala  annarra  vara  á
þjónustustöðvum félagsins. Aukningin er að mestu tilkomin af fjölgun ferðamanna,
sem  hefur verið  umfram væntingar  stjórnenda félagsins. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir  (EBITDA)  í  fyrirliggjandi  drögum  er  áætlaður  um  1.450 m.kr. á
3F 2016 sem  er umtalsvert betri EBITDA en á 3F 2015. Á 3F 2015 lækkaði olíuverð
mikið  sem hafði neikvæð áhrif á rekstur félagsins en á 3F 2016 hækkaði olíuverð
lítillega.

Hækkun á EBITDA spá 2016

Í  ljósi  ofangreinds  gerir  félagið  nú  ráð fyrir að EBITDA ársins 2016 verði
3.450 -  3.550 m.kr. Sú  spá gerir  ráð fyrir  því að olíuverð verði tiltölulega
stöðugt og að gengi USD/ISK verði í kringum 115.

Árshlutareikningur 3. ársfjórðungs 2016 verður birtur 27. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri, (eggert@n1.is)


[]